Fara í efni

Starf kennsluráðgjafa laust til umsóknar

80-100% starf kennsluráðgjafa við Skólaþjónustu Norðurþings er laust til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

Skólaþjónusta Norðurþings veitir leik- og grunnskólum í Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Langanesbyggð skólaþjónustu samkvæmt 40. grein laga um grunnskóla og reglugerð 444/2019 um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum.  Megin viðfangsefni þjónustunnar er að styrkja skóla og starfsemi þeirra með ráðgjöf og stuðningi við þróun skólastarfs, kennslu- og nemendaráðgjöf, skimunum, greiningum, og eftirfylgni. Heildarfjöldi nemenda á þjónustusvæði Skólaþjónustu Norðurþings er um 650.

Umsóknarfrestur er til og með 22. október 2021.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings á netfangið jon@nordurthing.is 

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum á netfangið nordurthing@nordurthing.is

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
miklum og sköpunarkrafti manns og náttúru.