Fara í efni

Starfsfólk óskast í Miðjuna hæfingu

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsfólki í  Miðjuna hæfingu.
Um er að ræða tvær stöður, eina 50% og aðra 80%.

Miðjan er hæfing, dagþjónusta og geðræktarstöð sem hefur það að markmiði að efla alhliða þroska og sjálfstæði einstaklings og viðhalda og auka færni hans.

Smellið á starfsauglýsingu hér til hægri fyrir nánari upplýsingar svo sem markmið starfsins og hæfniskröfur

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Margrét Einarsdóttir - gunnamagga@nordurthing.is
Starfsferilskrá og kynningarbréf þarf að fylgja umsókn. Umsóknir skulu berast á gunnamagga@nordurthing.is

Umsóknarfrestur er til 29. ágúst 2024