Fara í efni

Starfsfólk Stjórnsýsluhúsa Norðurþings heimsótti Dalvíkurbyggð

Starfsfólk Stjórnsýsluhúsa Norðurþings heimsótti Dalvíkurbyggð síðastliðinn föstudag. 

Starfsfólk Ráðhússins á Dalvík tók á móti hópnum og sýndi starfsstöðvar sínar og sagði frá spennandi verkefnum á vegum sveitarfélagsins. Þaðan lá leiðin í Menningarhúsið Berg þar sem hópurinn snæddi hádegisverð og fékk kynningu á þeim verkefnum og starfssemi sem fer þar fram. Að lokum heimsóttum við kaffihúsið Gísla, Eirík og Helga áður en lagt var af stað aftur til Húsavíkur.

Við þökkum nágrönnum okkar í Dalvíkurbyggð fyrir góðar móttökur.