Fara í efni

Stofnfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf

Í morgun var haldinn stofnfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf. skv. ákvörðun bæjarstjórnar. Félagið er stofnað á grundvelli frumvarps sem liggur fyrir Alþingi og verður afgreitt á næstu vikum. Félagið mun taka við öllum rekstri, eignum og skuldum Orkuveitu Húsavíkur frá og með 1. janúar s.l.

Stofnun Orkuveitu Húsavíkur ehf.

Í morgun var haldinn stofnfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf. skv. ákvörðun bæjarstjórnar. Félagið er stofnað á grundvelli frumvarps sem liggur fyrir Alþingi og verður afgreitt á næstu vikum. Félagið mun taka við öllum rekstri, eignum og skuldum Orkuveitu Húsavíkur frá og með 1. janúar s.l.

            Félagið er stofnað til að auka samkeppnishæfi orkufyrirtækis Húsavíkurbæjar í því nýja lagaumhverfi sem er að þróast í orkugeiranum. Engin áform eru uppi um sölu félagsins eða samruna þess við önnur félög.

            Í stjórn hins nýja félags voru kjörnir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður, Böðvar Bjarnason og Sigurjón Benediktsson. Í varastjórn eru Gunnlaugur Stefánsson og Tryggvi Jóhannsson. Endurskoðandi félagsins var kjörinn Björn St. Haraldsson lögg. endurskoðandi. Öllum starfsmönnum Orkuveitu Húsavíkur standa til boða sambærileg störf hjá hinu nýja félagi og hefur stjórnin falið stjórnarformanni að ganga til viðræðna við Hrein Hjartarson, fráfarandi veitustjóra og bæjarverkfræðing um gerð ráðningarsamnings í starf framkvæmdastjóra félagins.