Fara í efni

Stóra upplestrarkeppnin 2011 í Þingeyjarsýslum

Lokahátiðir Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskólanna í Þingeyjarsýslum verða haldnar á Raufarhöfn, fimmtudaginn 24. mars og á Húsavík, föstudaginn 25. mars.

Lokahátiðir Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskólanna í Þingeyjarsýslum verða haldnar á Raufarhöfn, fimmtudaginn 24. mars og á Húsavík, föstudaginn 25. mars.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í  7. bekk grunnskóla í Norður-Þingeyjarsýslu verður haldin í  Félagsheimilinu Hnitbjörgum  á Raufarhöfn fimmtudaginn  24. mars n.k.  og hefst kl. 14:00.  Keppendur eru nemendur úr  7. bekk Öxarfjarðarskóla,  Grunnskóla Raufarhafnar, Svalbarðsskóla, Grunnskóla  Þórshafnar og Grunnskóla Bakkafjarðar.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk  grunnskóla í Suður-Þingeyjarsýslu verður haldin í Salnum  í Miðhvammi  Húsavík  föstudaginn   25. mars  n.k. og hefst kl. 14:00.   Keppendur eru nemendur úr 7. bekk Borgarhólsskóla,  Hafralækjarskóla, Litlulaugaskóla  og Reykjahlíðarskóla.

Á  milli upplestraratriða koma fram nemendur úr Tónlistarskólunum á svæðinu og flytja tónlist.  Foreldrar og aðrir velunnarar skólanna eru hvattir til að koma og hlýða á það sem nemendurnir hafa fram að færa.

Fh. Undirbúningsnefndar

Sigurður Aðalgeirsson