Íþróttamiðstöðin á Raufarhöfn
19.05.2016
Tilkynningar
Íþróttamiðstöðin á Raufarhöfn
Óskað er eftir starfsmanni í hlutastarf í Íþróttamiðstöðina á Raufarhöfn. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að sækja námskeið í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
Í starfinu felst m.a:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
- Klefavarsla/baðvarsla/gangavarsla/ rýmisvarsla.
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
- Þrif
- Afgreiðsla á tjaldsvæði (sumar)
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veitir:
Kjartan Páll Þórarinsson tómstundafulltrúi Norðurþings
kjartan@nordurthing.is
464-6100