Störf laus til umsóknar - Matráður - Aðstoðarmatráður í skólamötuneyti
Skólamötuneyti Húsavíkur hefur starfsemi sína 1. ágúst næst komandi. Mötuneyti leikskólans Grænuvalla og mötuneyti Borgarhólsskóla verða þá sameinuð í eitt. Matráður og aðstoðarmatráðar munu starfa sem undirmenn yfirmatráðar sem mun reka mötuneytið sem sérstaka deild innan sveitarfélagsins og vera deildarstjóri hennar. Eldað verður í vel útbúnu eldhúsi í Borgarhólsskóla. Eldað verður daglega fyrir um 550 nemendur og starfsmenn Borgarhólsskóla og Grænuvalla auk starfsmanna stjórnsýsluhúss.
Fjögur störf í skólamötuneyti Húsavíkur eru nú laus til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi:
- Matráður (100%)
- Aðstoðarmatráður (75%)
- Aðstoðarmatráður (75%)
- Aðstoðarmatráður (50 %)
Starfslýsing - Matráður
Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja öflugt og metnaðarfullt skólamötuneyti í samvinnu við yfirmatráð, skólana, starfsfólk, foreldra og nemendur. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur sterka og faglega sýn á starfsemi skólamötuneyta. Matráður mun, undir stjórn yfirmatráðs, hafa umsjón með eldhúsi, sjá um matseld og bakstur, skipuleggja matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum ásamt því að hafa umsjón með þrifum. Matráður mun bera ábyrgð á fjármunum með öðrum og vera staðgengill yfirmatráðs. Gerð er krafa um mikla reynslu á þessu sviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla í mötuneytiseldhúsi
- Forystuhæfileikar, mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
- Reynsla af stjórnun í mötuneytiseldhúsi er æskileg
- Matartækninám er æskilegt
Starfslýsing – Aðstoðarmatráðar
Leitað er að einstaklingum sem hafa metnað og býr yfir hæfni til að vinna í öflugu skólamötuneyti að metnaðarfullu starfi þess í samstarfi við yfirmatráð, matráð, skólana, starfsfólk, foreldra og nemendur. Aðstoðarmatráðar starfa í mötuneytinu við matargerð og þrif og vinna sjálfstætt eftir fyrirmælum yfirmatráðs við bakstur og matargerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla í mötuneytiseldhúsi
- Mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2020.
Umsóknum skal skilað með tölvupósti til fræðslufulltrúa Norðurþings á netfangið jon@nordurthing.is
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum á netfangið nordurthing@nordurthing.is
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi miklum og sköpunarkrafti manns og náttúru.