Fara í efni

Styrkir til barna- og unglingastarfs í Norðurþingi 2007

Fjölskyldu- og þjónusturáð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfs í þágu barna og ungmenna. Félög og / eða samtök sem hafa barna- og unglingastarf á stefnuskrá sinni geta sótt um styrk    

Með umsókn skulu fylgja ársreikningar viðkomandi umsækjanda ásamt greinargerð um hvernig ætlunin er að nota það fjármagn sem óskað er eftir.  Ef viðkomandi umsækjandi sótti um og fékk styrk árið 2006  er óskað eftir greinargerð um hvernig því fjármagni var varið.

Fjármagnið er takmarkað og veittur styrkur oft ekki í samræmi við umsóknir.

Fjölskyldu- og þjónusturáð áskilur sér rétt til að óska eftir vinnuframlagi frá umsækjendum í þágu  barna  og ungmenna í Norðurþingi.

Umsóknum skal skila á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7 - 9, 640 Húsavík. fyrir 30. mars n.k.

Nánari upplýsingar veita undirrituð í síma 464 6123 eða forstöðumaður íþróttamannvirkja og frístundstarfs í síma 464 6196.

            Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og þjónustusviðs Norðurþings.