Fara í efni

Styrkir til barna- og unglingastarfs í Norðurþingi 2009

Æskulýðsnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfs í þágu barna og ungmenna. Félög og/eða samtök sem hafa barna- og unglingastarf á stefnuskrá sinni geta sótt um styrk. Með umsókn skulu fylgja ársreikningar viðkomandi umsækjanda ásamt greinargerð um hvernig ætlunin er að nota það fjármagn sem óskað er eftir. Ef viðkomandi umsækjandi sótti um og fékk styrk árið 2008 er óskað eftir greinargerð um hvernig því fjármagni var varið.

Æskulýðsnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfs í þágu barna og ungmenna. Félög og/eða samtök sem hafa barna- og unglingastarf á stefnuskrá sinni geta sótt um styrk.

Með umsókn skulu fylgja ársreikningar viðkomandi umsækjanda ásamt greinargerð um hvernig ætlunin er að nota það fjármagn sem óskað er eftir. Ef viðkomandi umsækjandi sótti um og fékk styrk árið 2008 er óskað eftir greinargerð um hvernig því fjármagni var varið.

Fjármagnið er takmarkað og veittur styrkur ekki oft í samræmi við umsóknir.

Æskulýðsnefnd Norðurþings áskilur sér rétt til að óska eftir vinnuframlagi frá umsækjendum í þágu barna og ungmenna í Norðurþingi.

Umsóknum skal skila á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík fyrir 30.mars n.k.

 

Nánari upplýsingar veitir

Jóhann Rúnar Pálsson

Æskulýðsfulltrúi Norðurþings

4646196/4646197

joipals@nordurthing.is