Styrkir til lista- og menningarmála
Fjölskyldu- og þjónusturáð Húsavíkurbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Húsavíkurbæjar og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Sérstök athygli er vakin á að allir styrkir Húsavíkurbæjar til lista- og menningarstarfsemi eru veittir úr Lista- og
menningarsjóði. Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og
menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast neðar á síðunni.
Umsóknum vegna úthlutunar í október skal skila til framkvæmdastjóra Fjölskyldu- og þjónustusviðs eigi síðar en 3.
október 2005. Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð.
F.h. Fjölskyldu- og þjónusturáðs Húsavíkurbæjar
Erla Sigurðardóttir
Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og þjónustusviðs Húsavíkurbæjar
Reglur um úthlutun úr sjóðnum.
Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs