Styrkir til lista- og menningarmála
02.02.2017
Tilkynningar
Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast hér.
Umsóknum vegna úthlutunar í mars 2017 skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eða með tölvupósti á snabbi@nordurthing.is eigi síðar en 24. febrúar n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
F.h. Æskulýðs- og menningarnefndar Norðurþings.
Snæbjörn Sigurðarson
Menningarfulltrúi
s. 669-8425,
snabbi@nordurthing.is