Fara í efni

Styrkir til lista- og menningarmála

Fjölskyldu- og þjónusturáð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs  ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is.

Umsóknum vegna úthlutunar í mars skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 16.mars n.k. Allar nánari upplýsingar veita undirrituð og Sigurður Aðalgeirsson hjá Fjölskylduþjónustu Þingeyinga.

F.h. Fjölskyldu- og þjónusturáðs Norðurþings.

Erla Sigurðardóttir

Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og þjónustusviðs Norðurþings

s. 464 6123,

erla@husavik.is