Fara í efni

Styrkir til lista- og menningarmála

Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.  

Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála.

Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

 

Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs  ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is/.

Umsóknum vegna úthlutunar í október skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 12. október n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð.

F.h. Menningar- og fræðslunefndar Norðurþings.

Huld Aðalbjarnardóttir
Menningar- og fræðslufulltrúi
s. 464 6123,
huld@nordurthing.is