Fara í efni

Styrkir til lista- og menningarmála

Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum. Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs  ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á hér.

Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs  ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á hér.

Umsóknum vegna úthlutunar í mars skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 18. mars n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð.

F.h. Menningar- og fræðslunefndar Norðurþings.

Huld Aðalbjarnardóttir
Menningar- og fræðslufulltrúi
s. 464 6123,
huld@nordurthing.is