Fara í efni

Styrkir til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019 sem undirritaður var í febrúar sl.   Sjóðurinn er samkeppnissjóður og tekur við hlutverki Menningarráðs Eyþings,  Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Vaxtarsamnings Norðausturlands og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna,  atvinnuþróunar og nýsköpunar  auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.  

Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.

Á sviði menningar:

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
  • Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
  • Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista

 

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar:

  • Verkefni sem stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar
  • Verkefni sem til þess eru fallin að auka fjölbreytni atvinnutækifæra
  • Verkefni sem stuðla að samstarfi atvinnulífs, háskóla og þekkingarstofnana
  • Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun

Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is  á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna.  Umsóknarfrestur er til og með 13. maí.  Tilkynnt verður um úthlutun í júní. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

 

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra veita:

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir  menning@eything.is  sími 464 9935

Baldvin Valdimarsson baldvin@afe.is  sími 460 5701

Reinhard Reynisson reinhard@atthing.is  464 0415

Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is  sími 464 0415

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið uppbygging@eything.is 

 

Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa og starfsmanna atvinnuþróunarfélaganna vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar  verða sem hér segir:

Akureyri               20. og 22. apríl kl. 13-15                Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð

Grímsey               24. apríl kl. 14-16                             Félagsheimilinu Múla

Kópasker             27.  apríl 10.30-12                            Skrifstofu Norðurþings

Raufarhöfn         27. apríl kl. 13-15                             Skrifstofu Norðurþings

Þórshöfn             28. apríl  kl. 9-11                             Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn

Húsavík                28. apríl kl. 14-16                           Menningarmiðstöð Þingeyinga

Hrísey                   4. maí kl. 10-11.30                          Húsi Hákarla Jörundar

Grenivík               4. maí  kl. 15-16                               Skrifstofu Grýtubakkahrepps

Laugum                5. maí kl. 10.30-12                          Skrifstofu Þingeyjarsveitar

Mývatnssveit     5. maí kl. 13-14                                Skrifstofu Skútustaðahrepps

Dalvík                    6. maí kl. 10-12                               Ráðhúsinu á Dalvík, 3.hæð

Ólafsfjörður       6. maí kl. 13-14                                Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar

Siglufjörður        6. maí kl. 14.30-16                          Bæjarskrifstofu Siglufjarðar

Akureyri               7. maí  kl. 9-16                                 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.