Fara í efni

Suðurfjara - útboð

Sveitarfélagið Norðurþing
Fiskifjara – Upptaka Búðarár
Jarðvinna og gatnagerð Apríl 2018.


Sveitarfélagið Norðurþing óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við upptöku Búðarár í Árgili ásamt jarðvinnu og gatnagerð í Stangarbakkafjöru á Húsavík. 

                        Helstu magntölur      Magn        Eining

Gröftur                                                    2.800 m3
Fylling                                                     200 m3

Gatnagerð                                             210 lm

Fráveitulagnir                                        200 m

Enginn kynningarfundur er áætlaður í tengslum við útboðið, en Verkfræðistofan Mannvit á Húsavík veitir nánari upplýsingar um verkefnið sé þess óskað. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2018. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík frá og með fimmtudeginum 3. maí 2018 klukkan 13.00. Tilboð skulu hafa borist skrifstofu Norðurþings Ketilsbraut 7-9 á Húsavík eigi, síðar en mánudaginn 28. maí 2018 klukkan 13.00 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem sem þess óska.
Útboð: 201604082