Fara í efni

Sumarvinna í Norðurþingi

Sumarið 2010 mun sveitarfélagið Norðurþing standa fyrir sumarvinnu fyrir fólk fætt 1993 og fyrr og hefur lögheimili í sveitarfélaginu Norðurþingi.  Vinna mun hefjast 8. júní og að öllum líkindum standa fram í lok júlí (vinnutími fer eftir fjölda umsækjenda).

Sumarið 2010 mun sveitarfélagið Norðurþing standa fyrir sumarvinnu fyrir fólk fætt 1993 og fyrr og hefur lögheimili í sveitarfélaginu Norðurþingi.

 Vinna mun hefjast 8. júní og að öllum líkindum standa fram í lok júlí (vinnutími fer eftir fjölda umsækjenda).

Þeir sem þegar hafa sótt um sumarvinnu hjá Norðurþingi þurfa ekki að sækja aftur um. Mæta þarf á skrifstofur sveitarfélagsins á Húsavík(suðurenda), Raufarhöfn og Kópaskeri mánudaginn 7. júní og skrifa undir ráðningarsamning. 

Verkefni verða t.d. gróðursetning, áburðargjöf á plöntur, stígagerð, eyðing illgresis, grisjun skóga o.fl.

Launaflokkur verður 115 samkvæmt kjarasamningi Framsýnar.

Þeir sem hug hafa á að sækja um geri það á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík og skrifstofum sveitarfélagsins á Kópaskeri og Raufarhöfn. Gerðir verða ráðningasamningar við hvern umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2010.

Undirbúningsnefnd, nánari upplýsingar veitir Sveinn Hreinsson í síma 464-6100