Fara í efni

Sundlaugar Norðurþings - sumaropnun

Sumaropnun í Sundlaugum Norðurþings er sem hér segir:

Húsavík : Virka daga 06:45 - 21:00, helgar  10:00 - 18:00

Lundur : Opið virka daga: 16-21 , helgar: 10-17

Raufarhöfn : Mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugardaga: 17-19.30
Því miður hefur ekki náðst að setja á sumaropnun á Raufarhöfn vegna manneklu. Bent er á að laus eru störf til umsóknar sem má lesa nánar um hér. Aukinni opnun verður komið á um leið og færi gefst á.

Vegna mistaka lokaði sundlaug Húsavíkur kl 19 síðastliðinn föstudag og er hér með beðist velvirðingar á því og þeim óþægindum sem það kann að hafa valdið. Sumaropnun sundlaugarinnar er til 21 alla virka daga.

Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta - og tómstundafulltrúi Norðurþings.