Fara í efni

Sveitarfélagið Norðurþing auglýsir til leigu landafnot á Þórseyri og Ytri Bakka

Sveitarfélagið Norðurþing auglýsir til leigu landafnot á Þórseyri og Ytri Bakka í Kelduhverfi við Öxarfjörð sem leigist frá áramótum 2013 – 2014. Þórseyri sem er vestan Jökulsár er 115 ha. að stærð. Hús eru á landinu.

Ytribakki sem er austan Jökulsár er 2000 ha. að stærð. Engin hús eru á landinu.

Skila skal inn hugmynd að leiguupphæð.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Í umsókn þarf að koma fram ætluð notkun leigjanda á löndunum.

Umsóknum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins Ketilsbraut 7 – 9 640 Húsavík

fyrir 10. nóvember 2013.

Frekari upplýsingar veitir

Sveinn Hreinsson.

Umsjónarmaður fasteigna Norðurþings