Sveitarfélagið Norðurþing Sveitarfélagið Tjörneshreppur, Útboð
18.02.2015
Tilkynningar
Sveitarfélögin Norðurþing og Tjörneshreppur óska eftir tilboðum í verkið Söfnun, flutningur og
afsetning úrgangs, endurvinnsla, moltugerð og rekstur móttökustöðvar á Húsavík fyrir sveitarfélögin Norðurþing og
Tjörneshrepp
2015-2018.
Í verkinu felst tæming á sorp- og endurvinnsluílátum frá íbúðarhúsnæði,
móttaka, meðhöndlun og afsetning, útvegun íláta, rekstur móttökustöðvar á Húsavík og
rekstur urðunarstaðar fyrir óvirkan úrgang. Útboðið er auglýst á Evrópska
efnahagssvæðinu. Útboðsgögn fást frá og með mánudeginum 16. febrúar 2015 hjá EFLU
verkfræðistofu, Hofsbót 4 á Akureyri við skráningu samskiptaaðila í útboði. Opnun tilboða er kl. 11:00 þann 12.
mars 2014 í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík.
ELFA verkfræðistofa.