Fara í efni

Sveitarfélög á Norðausturlandi og Ríkisstjórnin undirrita viljayfirlýsingu

Sveitarfélög á Norðausturlandi og Ríkisstjórnin undirrita viljayfirlýsingu: Jarðvarma í Þingeyjarsýslum skal nýta til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar á svæðinu

Sveitarfélög á Norðausturlandi og Ríkisstjórnin undirrita viljayfirlýsingu:
Jarðvarma í Þingeyjarsýslum skal nýta til
umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar á svæðinu

Í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og fjögurra sveitarfélaga á Norðausturlandi er lögð áhersla á mikilvægi þess að nýta jarðvarma í Þingeyjarsýslum til umfangsmikillar atvinnuuppbyggingar og til að efla byggð á svæðinu. Með viljayfirlýsingunni er stefnt að því að skapa þær aðstæður að allri nauðsynlegri forvinnu verði lokið þegar gengið verður til samninga við einn stóran orkukaupanda eða fleiri minni orkukaupendur um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum.
Verkefnisstjórn verður skipuð og mun hún bera ábyrgð á greiningu innviða, meta þörf fyrir að efla og styrkja opinbera þjónustu og huga að vexti atvinnulífs á svæðinu og fjölbreytni þess.
Undir viljayfirlýsinguna skrifuðu Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og fulltrúar Norðurþings, Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar og Tjörneshrepps.