Fara í efni

Framboð til Sveitarstjórnar Norðurþings 2022

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí 2022.
Frestur til að skila framboðslistum er til 8. apríl 2022, kl. 12:00 á hádegi.

Framboðum, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, skal skila á Skrifstofu Norðurþings á Húsavík
fyrir þann tíma eða til Yfirkjörstjórnar Norðurþings, sem tekur á móti framboðum á Skrifstofu Norðurþings (suður inngangur) föstudaginn 8. apríl 2022 kl. 11:00-12:00.

Framboðslistar skulu skipaðir 9-18 fulltrúum og þeim skal fylgja listi 40-80 meðmælenda (frambjóðendur og meðmælendur þurfa að vera kjósendur í Norðurþingi og hver meðmælandi getur einugis mælt með einu framboði).
Einnig er skilyrði fyrir móttöku framboðslista að nöfn meðmælenda hafi verið skráð
í meðmælendakerfi Þjóðskrár Íslands, sjá nánar á vef Þjóðskrár:
https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/skraning-framboda-i-medmaelendakerfi/ og í reglugerð nr. 330/2022.

Nánari upplýsingar um framkvæmd og framboð má finna í kosningalögum
nr. 112/2021 og á upplýsingavefnum www.kosning.is.

Skrifstofa Norðurþings sími 464-6100 og Yfirkjörstjórn Norðurþings kjorstjorn@nordurthing.is veita allar frekari upplýsingar og leiðbeiningar vegna undirbúnings framboðslista og framkvæmd kosninganna í Norðurþingi.

Yfirkjörstjórn Norðurþings
Karl Hreiðarsson, formaður
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
Hermann Aðalgeirsson