Sveitarstjórnarkosningar 2022 - Kjörstaðir
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí 2022.
Rétt til að kjósa á kjörfundi á kosningadaginn 14. maí 2022, hafa allir 18 ára og eldri sem eru á
kjörskrá. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir, skv. eftirfarandi:
• Kjördeild I og II – Borgarhólsskóla Húsavík
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00.
Inngangur að austanverðu, gengt FSH og Íþróttahöllinni.
• Kjördeild III – Skúlagarði
Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
• Kjördeild IV – Skólahúsinu Kópaskeri
Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
• Kjördeild V – Ráðhúsinu á Raufarhöfn
Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
Aðsetur yfirkjörstjórnar verður í Borgarhólsskóla á Húsavík á kjördag.
Talning atkvæða fer fram á sama stað.
Um undirbúning, framkvæmd og frágang sveitarstjórnarkosninga fer eftir kosningalögum nr. 112/2021
Allar nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar, s.s. kjörskrá, lög
og leiðbeiningar er hægt að nálgast á upplýsingavefnum www.kosning.is
Einnig veita skrifstofur og Yfirkjörstjórn Norðurþings nánari upplýsingar.
Upplýsingar á ensku má finna hér
Upplýsingar á pólsku má finna hér
Yfirkjörstjórn Norðurþings
Karl Hreiðarsson
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
Berglind Ragnarsdóttir