Sýndu hvað í þér býr!
07.01.2009
Tilkynningar
Námskeið í félagsmálafræðslu á Húsavík 13. janúar
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Húsavík 13.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og
stendur til 22:00 og fer fram í félagsaðstöðu Völsungs. Námskeiðsgjald er 5000 krónur.
Námskeið í félagsmálafræðslu á Húsavík 13. janúar
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Húsavík 13.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 og fer fram í félagsaðstöðu Völsungs. Námskeiðsgjald er 5000 krónur.
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr." Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum. Námskeiðsgjald er 5000 krónur.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is