Fara í efni

Tækifæri fyrir unga leikara í Norðurþingi

Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures leitar að unglingsdrengjum á aldrinum 13 -15 ára  til að leika í kvikmyndinni Hjartasteinn sem áætlað er að taka  upp á tímabilinu ágúst-október 2015.

Ef þú hefur áhuga eða reynslu af leiklist og ert á aldrinum 13 -15 ára þá viljum við endilega fá þig í prufur.
Umsækjendur verða boðaðir í prufu eftir að umsókn berst.  

 

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur eftirfarandi upplýsingar: Fullt nafn, aldur og hæð ásamt nýlegri ljósmynd (andlitsmynd og mynd í fullri stærð) á casting@joinmotionpictures.com
ATH. Nafn, heimilisfang, sími og netfang hjá forráðamanni skal einnig fylgja umsókninni. 

Endilega senda póst eða mæta beint á svæðið

Georg Erlingsson Merritt