Fara í efni

Þjóðleikur á Norðurlandi

Öxarfjarðarskóli, Píramus og Þispa - leikfélag Framhaldsskólans á Húsavík, Borgarhólsskóli á Húsavík eru þátttakendur í stóru leiklistarverkefni sem nefnist Þjóðleikur en verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna. Mjög góð þátttaka er á Norðurlandi en nú hafa 14 hópar sótt um þátttöku í verkefninu. 

Auk áðurnefndra skóla eru það: Gjörningahópurinn Orkidea frá Akureyri, Leikhópurinn list, Grunnskóli Húnaþings vestra, Grunnskóli Fjallabyggðar, Yggdrasil - Leikfélag VMA, DADDAVARTA frá Skagaströnd, Blönduskóli,  Árskóli á Sauðárkróki, tveir hópar frá grunnskólum Akureyrar og síðan einn hópur frá Þórshöfn.

Þrjú glæný leikrit hafa verið skrifuð fyrir Þjóðleik, höfundarnir eru: Jón Atli Jónasson,  Kristín Ómarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson sem skrifa verk í sameiningu. Næstu helgi verður námskeið haldið í Þjóðleikhúsinu fyrir leiðbeinendur hvers hóps, þar sem listrænir stjórnendur í fremstu röð verða til leiðsagnar. Leiðbeinendur munu fá kynningu á leikverkunum sem eru í boði og þeim gefst tækifæri á að hitta og ræða við höfunda leikverkana.

Stefnt er á að halda tækninámskeið fyrir hópana og verður það haldið á Norðurlandi helgina 7.-9. janúar 2011.

Hver hópur setur upp leiksýningu í sinni heimabyggð og frumsýnir þegar honum hentar. Helgina 1-3.apríl 2011 verður haldin lokahátíð þar sem hóparnir koma saman með sýningar sínar.