Fara í efni

Þjónusta sveitarfélaga 2021 - Norðurþing

Gallup hefur sl. ár gert könnun þar sem athuguð var ánægja með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins. Niðurstaða er borin saman við kannanir síðustu ára. 

Könnunin var gerð 8. nóvember 2021 - 12. janúar 2022. Úrtakið var 11.426 í 20 stærstu sveitarfélögum landsins, 18 ára og eldri, lagskipt tilviljunarúrtak úr Viðhorfshópi Gallup. Safnað var gögnum þangað til tilteknum fjölda svara var náð í hverju sveitarfélagi fyrir sig. 

Í Norðurþingi náði könnunin til 157 manns.

Hér má finna þjónustukönnunina frá 2021 og hér má finna kannanir síðustu ára.