Fara í efni

Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Norðursiglingar

Þorsteinn Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Norðursiglingar ehf. Hann tekur við starfinu af Herði Sigurbjarnarsyni sem hefur gegnt því frá stofnun félagsins fyrir 17 árum. Þorsteinn Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Norðursiglingar ehf. Hann tekur við starfinu af Herði Sigurbjarnarsyni sem hefur gegnt því frá stofnun félagsins fyrir 17 árum.

Hörður mun þess í stað taka við formennsku í stjórn félagsins og verða sem slíkur starfandi stjórnarformaður.

Þorsteinn hóf störf hjá Norðursiglingu fyrir nærri þremur árum og þá sem rekstrarstjóri. Hann hefur þann tíma reynst sérstaklega ötull starfsmaður og er þessa dagana að ljúka MBA námi við Háskóla Reykjavíkur og að auki diplómanámi í verkefnastjórnun. Námið hefur hann stundað samhliða vinnunni hjá Norðursiglingu. Stjórn félagsins verður áfram skipuð eigendum þess, þ.e. auk Harðar þeim Árna Sigurbjarnarsyni og Heimi Harðarsyni.

Félagið hefur undanfarin misseri farið í gegn um stefnumótun leidda af virkum fagaðilum. Niðurstaða þeirrar vinnu hefur m.a. verið sú að nauðsynlegt sé að styrkja yfirstjórn þess, fyrst og fremst vegna aukinna umsvifa.

Félagið hefur höfuðstöðvar á Húsavík, starfrækir sölu- og markaðsskrifstofu í Reykjavík og hóf s.l. sumar hvalaskoðun á Eyjafirði með aðsetur á Ólafsfirði. Auk þess er nýhafinn rekstur á Grænlandi en þar siglir skonnortan Hildur viku í senn um stærsta fjarðakerfi heims, Scoresbysund. Farþegum er flogið af Flugfélagi Íslands til Constable Point þar sem Norðursigling tekur á móti þeim.

Má að auki nefna verkefni sem enn eru á undirbúningsstigi svo sem siglingar á Mývatni um borð í seglskipi sem verður knúið af rafmagni og seglum.
Einnig hefur verið keyptur 7. eikarbáturinn og er í undirbúningi að hann verði fyrstur íslenskra skipa til að sækja sjó við strendur landsins knúinn raforku úr landi auk seglabúnaðar.
Þá hefur félagið haft forgöngu í hópi fjárfesta sem hyggst reisa baðstað á Húsavíkurhöfða þar sem nýttur verður heitur jarðsjór.


f.h. Norðursiglingar
Hörður Sigurbjarnarson

(Fréttatilkynning)