Þrettándaviðburðir í Norðurþingi
Nóg er um að vera á þrettándanum í Norðurþingi á Húsavík, Skúlagarði og á Raufarhöfn.
- Húsavík
o Völsungur verður með skrúðgöngu frá íþróttahöllinni niður í suðurfjöru og einnig verður flugeldasýning í umsjön Kiwanis.
17.45 - Skrúðgangan fer af stað frá íþróttahöll niður í fjöru.
18.00 – brenna og þrettándasöngur
18.15 – flugeldasýning frá Kiwanis.
o 5.flokkur kvenna heldur utan um skipulagningu á viðburðinum fyrir hönd íþróttafélagsins
- Skúlagarður
o Grímuball í Skúlagarði föstudag 6. janúar kl. 19:00 – allir velkomnir og fólk beðið að taka með sér eitthvað góðgæti til að setja á hlaðborð en kaffi og djús verður í boði.
Viðburðurinn er í umsjón ungmennafélagsins Leifs Heppna
- Raufarhöfn
o Foreldrafélagið Velvakandi og björgunarsveitin Pólstjarnan standa fyrir Þrettándagleði og kyndilgöngu við grunnskólann kl 18.00