Fara í efni

Til sölu: Fasteignin að Aðalbraut 20-22 á Raufarhöfn

Sveitarfélagið Norðurþing auglýsir til sölu fasteignina að Aðalbraut 20-22 á Raufarhöfn, F216-7244.

Birt samanlögð stærð allra eignarhluta er 6.483,3 fm. Fasteignamat er samtals 82.543.000 kr. og brunabótamat 564.065.000 kr.

Heimilt er að bjóða í alla eða afmarkaða eignarhluta. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna hagstæðu tilboði í stakan eða fáa eignarhluta ef talið er hagstæðara fyrir hagsmuni sveitarfélagsins að taka öðru tilboði í fleiri eignarhluta.

Sveitarfélaginu er umhugað um að starfsemi komist í húsið sem styðji við atvinnu- og/eða mannlíf á Raufarhöfn og í sveitarfélaginu.
Við mat á tilboðum verður horft til eftirfarandi þátta:

  1. Kaupverð og krafa um framlag seljanda (vegið saman) (40%)
  2. Hugmyndir tilboðsgjafa um nýtingu húsnæðisins (20%)
  3. Mat á styrkleika tilboðsgjafa til að ljúka verkefninu (40%)

Frestur til að skila inn tilboðum er til 26. nóvember n.k. kl. 14:00.

Nánari upplýsingar um eignirnar og skiptingu hennar er hægt að fá á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík, eða með beiðni þar um í netfangið nordurthing@nordurthing.is.