Fara í efni

Tilkynning til foreldra leikskólabarna

Á 38. fundi sínum þann 3. júlí 2014 samþykkti Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings eftirfarandi:

Séu fjögur börn eða fleiri skráð í leikskóladeild í samreknum leik- og grunnskólum innan sveitarfélagsins, verður haldið úti leikskólaþjónustu í deildinni. Foreldrar skrái börn sín vegna komandi skólaárs fyrir 1. maí ár hvert. Vegna leikskóladeildar á Kópaskeri skólaárið 2014-2015 skrái foreldrar börn sín í deildina fyrir 20. júlí. 

Í samræmi við ofangreint eru foreldrar á skólasvæði Öxarfjarðarskóla beðnir að tilkynna skólastjóra fyrir 20. júlí n.k. með tölvupósti á netfangið gudrunsk@nordurthing.is hvort barn þeirra verðu í leikskóla á Kópaskeri eða í Lundi skólaárið 2014-2015. 

 

Fyrir hönd Fræðslu- og menningarnefndar

 

Erla Sigurðardóttir

Fræðslu- og menningarfulltrúi