Fara í efni

Tilkynning til íbúa á Húsavík

Á morgun, laugardaginn 7. janúar, er áætlað að losa allar sorptunnur við heimili á Húsavík.

Á morgun, laugardaginn 7. janúar, er áætlað að losa allar sorptunnur við heimili á Húsavík.

Íbúar eru beðnir um að moka vel frá sorptunnum til að auðvelda aðgengi starfsmanna að tunnunum og tryggja skilvirka sorphirðu. Ekki er verra að sanda eða salta að og við tunnur ef aðstæður eru þannig.

Með von um gott samstarf,

Hafsteinn H. Gunnarsson
Framkvæmdastjóri Sorpsamlags Þingeyinga