Tilkynning um losun á rotþróm haustið 2021
05.08.2021
Tilkynningar
Losun á rotþróm fer fram í lok ágúst og í september og eru íbúar búnir að greiða fyrir losunina í gegnum fasteignaskatta.
Athugið að ef grafa þarf niður á stútana til að hægt sé að hreinsa þarf að gera það og merkja með fána.
Hægt er að fylgjast með því á kortasjá sveitarfélagsins hvenær losun fór fram. Nálgast má kortasjá hér