Tillaga að breytingu aðalskipulags og deiliskipulags norðurhafnar á Húsavík
Breyting aðalskipulags norðurhafnar á Húsavík. Breytingin felst f.o.f. í nýrri 1,9 ha landfyllingu innan norðurhafnar (reitur H2), lengingu viðlegukants Bökugarðs til norðurs, lítillega breyttri útfærslu brimvarnar við Bökugarð og breyttri landnotkun tveggja lóða á Naustagarði vegna aukinna umsvifa ferðaþjónustu. Skipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu er sett fram á einum uppdrætti á blaðstærð A3.
- Deiliskipulag norðurhafnar. Skipulagstillagan felst í sameiningu tveggja eldri deiliskipulagsuppdrátta ásamt breytingum innan beggja skipulagssvæða. Mesta breytingin fellst í skipulagsskilmálum fyrir fyrirhugaða nýja 1,9 ha landfyllingu í norðurhöfn við lóð Eimskips. Þar er gert ráð fyrir fjórum nýjum lóðum og byggingarreitum auk athafnasvæða. Þar yrðu heimilaðar allt að átta metra háar byggingar. Einnig er gert ráð fyrir athafnasvæðum og byggingarlóðum á uppfyllingu vestur af lóð Eimskip. Skilgreind er lóð utan um slippinn í Naustafjöru og skilgreindur byggingarreitur þar fyrir aðstöðuhús sem gæti orðið allt að átta metra hátt. Skipulagstillagan felst í skipulagsuppdrætti í blaðstærð A1 ásamt sjálfstæðri greinargerð og umhverfisskýrslu.
Skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum verða til sýnis á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 24. október 2014 til 5. desember 2014. Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillögurnar á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is). Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með föstudeginum 5. desember 2014. Skila skal skriflegum athugasemdum til bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir. Skipulagstillögurnar verða sérstaklega kynntar á opnu húsi í fundarsal bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 þriðjudaginn 28. október n.k. milli kl. 14 og 16.
Húsavík 21. október 2014
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi