Fara í efni

Tillögur að breytingu aðalskipulags Norðurþings og deiliskipulagi að Krossdal í Kelduhverfi

Bæjarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 og tillögu að nýju deiliskipulagi skv. 1. mgr. 41. gr. sömu laga ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslum. 

Húsavík  3/3/14

  

  1. Breyting aðalskipulags Norðurþings 2010-2030, breytt landnotkun á svæði við Krossdal í Kelduhverfi.  Skipulagsbreytingin felst í að skilgreindur er nýr verslunar- og þjónustureitur (V8), þar sem fyrir er landbúnaðarsvæði.  Ætlunin er að reisa á reitnum lágreistar byggingar til gistisölu og jafnframt skilgreina tjaldsvæði með tilheyrandi þjónustubyggingu.  Aðkoma að svæðinu er um fyrirliggjandi veg frá norðausturvegi.  Skipulagstillagan er sett fram á einu blaði A3 þar sem fyrirhuguð breyting er sýnd í samanburði við gildandi skipulag (mkv. 1:10.000) auk greinargerðar skipulagsins.  Stutt umhverfisskýrsla er innifalin í greinargerð.
  2. Nýtt deiliskipulag verslunar- og þjónustureits V8 við Krossdal í Kelduhverfi.  Innan skipulagssvæðis er skilgreind ein byggingarlóð ásamt vegtengingum að henni.  Skipulagið miðar að því að heimila byggingu tveggja gistiskála á tveimur afmörkuðum byggingarreitum með samtals allt að 60 herbergjum.  Einnig er gert ráð fyrir tjaldsvæði og tilheyrandi þjónustuhúsi innan lóðarinnar.  Skipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu er sett fram á einu blaði í stærð A2.

 

Skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum verða til sýnis á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 6. mars 2014 til 17. apríl 2014.  Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillögurnar á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is).  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 17. apríl 2014.  Skila skal skriflegum athugasemdum til bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast þeim samþykkir.

 

Húsavík 3. mars 2014

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi