Tilnefning til umhverfisverðlauna 2009
Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.
Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar:
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra,
náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009. Frekari upplýsingar veitir umhverfisfulltrúi stofnunarinnar, Sveinn Rúnar Traustason, í síma 535 5510.
Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600
Akureyri eða með tölvupósti á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30.
október næstkomandi.
Sjá nánar á vef ferðamálastofu.