Fara í efni

Truflanir á sambandi við skiptiborð Norðurþings

Vegna viðgerðar á raflínu Rarik, nánar til tekið Kópaskerlínu, sem er afleiðing af óveðri í september sl. má búast við truflunum í dag og á morgun á símasambandi við skiptiborð Norðurþings vegna tímabundins rafmagnsleysis.

Vonir standa til að sambandsleysið standi aðeins í fáar mínútur í senn.  Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar truflanir valda.