Fara í efni

Umhverfismatskýrsla um eldisstöð á Röndinni á Kópaskeri

Rifós hf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um eldisstöð á Röndinni á Kópaskeri.

Umhverfismatsskýrsla fyrir ofangreinda framkvæmd liggur frammi til kynningar á skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri frá 24. mars - 11. maí 2022 og á vefsíðu Skipulagsstofnunar.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram umsagnir. Umsagnir skulu berast skriflega til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag eigi síðar en 11. maí 2022.