Umhverfisstofnun með kynningarfund á Húsavík á fimmtudag vegna kísilvers á Bakka
06.09.2017
Tilkynningar
Umhverfisstofnun með kynningarfund á Húsavík á fimmtudag vegna kísilvers á Bakka
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að nýju starfsleyfi fyrir kísilverksmiðju á Bakka í Norðurþingi. Auglýsingin fer fram á tímabilinu 20. júlí til 15. september 2017. Af þessu tilefni fer fram opinn kynningarfundur í sal Framsýnar, skrifstofu stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26, Húsavík, fimmtudaginn 7. september næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 16:30 og verður fjallað um starfsleyfisveitingar Umhverfisstofnunar, eftirlit með framkvæmd starfsleyfa, umhverfisvöktun sem tengist starfseminni og tillagan kynnt. Einnig verður opnað fyrir fyrirspurnir og umræður.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 15. september 2017.