Fara í efni

Umsókn um leikskólavist veturinn 2013-2014

Þeir sem ætla að eiga möguleika á leikskólavist fyrir barn sitt veturinn 2013-2014 eða ætla að breyta vistunartíma barna sinna er bent á að sækja um það sem fyrst.

Í 2. grein í reglum um inntöku barna á leikskóla í Norðurþingi kemur fram að þeir sem ekki hafa sótt um leikskólavist fyrir 1. apríl geta ekki vænst þess að fá leikskólapláss fyrr en ári seinna. Þetta á jafnt við um forgangshópa sem og aðra.

Umsóknareyðublöð og reglur um inntöku á leikskóla Norðurþings er hægt að nálgast hér á vefnum undir gjaldskrár.

Umsóknum skal skilað til leikskólastjóra eða aðstoðarleikskólastjóra.

Leikskólastjóri Grænuvalla