Umsóknir um byggðakvóta fiskveiðiárið 2015/2016
07.01.2016
Tilkynningar
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í Norðurþingi.Tengill á frétt Fiskistofu
Byggðakvóti 2015/2016 (VI)
29.12.2015
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í eftirfarandi byggðarlögum:
- Á grundvelli reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 605, 3. júlí 2015
Djúpivogur
- Auk ofangreindrar reglugerðar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1159/2015 í Stjórnartíðindum:
Norðurþing (Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn)
Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður)
- Fiskistofa auglýsir öðru sinni eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í neðangreindum byggðarlögum sbr. reglugerð nr. 605/2015 og auglýsingu nr. 1159/2015 (áður sendar umsóknir eru gildar):
Vogar
Ísafjarðarbær (Ísafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á hér
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2016.