Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2019.
Opnað verður fyrir umsóknir kl. 12:00 á hádegi 10. október. Umsóknarfrestur er til og með kl. 12:00 á hádegi 7. nóvember. Sótt er um á rafrænni umsóknargátt sem er á heimasíðu Eyþings www.eything.is
Starfsmenn Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna verða með viðveru á starfssvæðinu þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna.
Nánar upplýsingar um uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra má finna hér
Nú eru ráðgjafar okkar á ferðinni en þeirra dagskrá er eftirfarandi:
Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:
Viðtalstímar
- Dalvíkurbyggð 15.okt. kl 10:00-12:00 Menningarhúsinu Bergi
- Ólafsfjörður 15. okt kl. 13:00-14:00 Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði
- Siglufjörður 15. okt. kl. 14:30-15:00 Ráðhúsinu Siglufirði
- Grenivík 16. okt kl. 14:00-15:00 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
- Húsavík 17. okt kl. 9:00-11:00 AÞ, Garðarsbraut 5 - 2.hæð
- Reykjahlíð 17. okt kl. 13:00-14:30 Skrifstofa Skútustaðahrepps
- Laugar 17. okt kl. 15:30-17:00 Seigla - miðstöð sköpunar
- Þórshöfn 18. okt kl. 10:00-11:30 Menntasetrið á Þórshöfn
- Raufarhöfn 18. okt kl. 13:00-14:30 Skrifstofa Norðurþings
- Kópasker 18. okt kl. 15:30-17:00 Skrifstofa Norðurþings
Fyrir utan ofangreindar dagsetningar bjóða ráðgjafar upp á viðtalstíma á starfsstöðvum sínum eftir samkomulagi.