Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kjörs forseta Íslands þann 30. júní 2012, við embætti
sýslumannsins á Húsavík er hafin. Opið er á skrifstofutíma á milli kl. 9:30 – 15:00.
Jafnframt verður opið laugardagana 2., 9., 16. og 23. júní frá kl. 12:00 – 14:00.
Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 19. júní kl. 9:30 - 10:30.
Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 19. júní kl. 12:00 - 13:00.
Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 19. júní kl. 15:00 - 16:00.
Skrifstofu Skútustaðahrepps, miðvikudaginn 20. júní kl. 10:00 - 12:00.
Skrifstofu Þingeyjarsveitar, miðvikudaginn 20. júní kl. 14:00 - 16:00.
Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á lögreglustöðinni á Þórshöfn samkvæmt
ákvörðun lögreglumanns á vakt.
Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni: http://www.kosning.is/
7. maí 2012
Sýslumaðurinn á Húsavík