Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sem fram fer þann 20. október 2012, er hafin við embætti sýslumannsins á Húsavík.

Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30 – 15:00.  Opið verður fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu laugardaginn 13. október og sunnudaginn 14. október frá kl. 12:00 til 14:00.  Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 til 12:00. 

Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á eftirtöldum stöðum: 

  • Skrifstofu Skútustaðahrepps, mánudaginn 15. október kl. 10:00 - 12:00.
  • Skrifstofu Þingeyjarsveitar, mánudaginn 15. október kl. 14:00 - 16:00.
  • Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 16. október kl. 9:30 - 10:30.
  • Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 16. október kl. 12:00 - 13:00. 
  • Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 16. október kl. 15:00 - 16:00, en einnig samkvæmt ákvörðun lögreglumanns á vakt.

Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni:  http://www.kosning.is

Sýslumaðurinn á Húsavík