Fara í efni

Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs

Fimmtudaginn 10. apríl úthlutaði Menningarráð Eyþings verkefnastyrkjum til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings. Er þetta önnur úthlutun ráðsins og fór athöfnin fram í Tónlistarhúsinu Laugarborg að viðstöddu fjölmenni. Ávörp fluttu Helga Haraldsdóttir skrifstofustjóri ferðamála í iðnaðarráðuneyti og Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður menningarráðs. Flutt voru tónlistaratriði af styrkþegum sem og danssýning frá Vefaranum.

Alls bárust ráðinu 75 umsóknir um rúmar 60 milljónir. 49 verkefni hlutu styrk að upphæð rúmar 20 milljónir króna. Að þessu sinni féll hæsti styrkur ráðsins í skaut tónlistarhátíðarinnar Akureyri International Music Festival (AIM)  Að hátíðinni stendur áhugahópur um fjölbreyttan og lifandi tónlistarflutning. 

Sjö verkefni frá Norðurþingi hlutu styrk.

  1. Varðveisla hringinga sveitasíma á Vestursléttu, Núpasveit og í Öxarfirði. Umsækjandi, Kristbjörg Sigurðardóttir
  2. Hrútadagurinn á Raufarhöfn. Umsækjandi: Einar Sigurðsson (Hestamannafélagið Snæfaxi)
  3. Garðarshólmur. Umsækjandi: Garðarsstofa frá Húsavík
  4. Héraðstónar - tónleikaröð á Kópaskeri. Umsækjandi: Flygilvinir
  5. Hembrygden "Söngur án landamæra, námskeið og uppbygging" á Húsavík. Umsækjandi: Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings.
  6. Jarðskjálftasetur á Kópaskeri. Umsækjandi: Skjálftafélagið
  7. Þingeyskur Sögugrunnur. Umsækjandi: Safnahúsið á Húsavík - sjóminjasafn.

Norðurþing óskar ofangreindum styrkhöfunum innilega til hamingju.