Útsvar í Hofi
Lið Akureyrar og Norðurþings etja kappi í útslitaviðureign Útsvarsins nk. föstudagskvöld í beinni útsendingu frá Hofi.
Til að tryggja sér sæti í salnum þarf að nálgast miða á fimmtudag kl. 13 í miðasölu Hofs eða í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík.
Við bendum á að takmarkað magn af miðum er í boði. Hver einstaklingur getur nálgast fjóra miða og börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Salurinn opnar kl. 19:30 og útsendingin hefst kl. 20:10.
Annars eru allir velkomnir í Hof á föstudagskvöldið til þess að taka þátt í þessum stórskemmtilega viðburði. Þættinum verður einnig varpað á risatjaldi í minni sal Hofs þannig að það má gera ráð fyrir mikilli stemningu í húsinu. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Lið Akureyrar skipa þau Birgir Guðmundsson, Hilda Jana Gísladóttir og Hjálmar Brynjólfsson. Í liði Norðurþings eru Kristveig Sigurðardóttir, Stefán Þórsson og Þorgeir Tryggvason.
Umsjónarmenn þáttarins eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.