Fara í efni

Vaxtarsprotar í Þingeyjarsýslum

Haldnir verða kynningarfundir um Vaxtarsprota í Þingeyjarsýslum í janúar. Þar munu áhugaverðir fyrirlesarar fjalla um tækifæri til atvinnusköpunar og segja frá reynslu sinni, auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega. Vaxtarsprotar er stuðningsverkefni sem hefur það markmið að hvetja og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum. Verkefnið er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Verkefnið kemur til framkvæmdar í Þingeyjarsýslum á árinu 2008. Miðvikud. 9. janúar, kl. 20:30. Þinghúsinu Breiðumýri Þingeyjarsveit. Fimmtud. 10. janúar, kl. 14:00. Grunnskólanum Svalbarði Svalbarðshreppi. Fimmtud. 10. janúar, kl. 20:00. Félagsheimilinu Skúlagarði Norðurþingi. Fundirnir eru opnir öllum  áhugasömum um atvinnumál í Þingeyjarsýslum. Nánar um dagskrá fundanna

Haldnir verða kynningarfundir um Vaxtarsprota í Þingeyjarsýslum í janúar. Þar munu áhugaverðir fyrirlesarar fjalla um tækifæri til atvinnusköpunar og segja frá reynslu sinni, auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega.

Vaxtarsprotar er stuðningsverkefni sem hefur það markmið að hvetja og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum. Verkefnið er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins.

Verkefnið kemur til framkvæmdar í Þingeyjarsýslum á árinu 2008.

Miðvikud. 9. janúar, kl. 20:30.
Þinghúsinu Breiðumýri Þingeyjarsveit.

Fimmtud. 10. janúar, kl. 14:00.
Grunnskólanum Svalbarði Svalbarðshreppi.

Fimmtud. 10. janúar, kl. 20:00.
Félagsheimilinu Skúlagarði Norðurþingi.

Fundirnir eru opnir öllum  áhugasömum um atvinnumál í Þingeyjarsýslum.

Nánar um dagskrá fundanna