Fara í efni

Verkefnastyrkir til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings. Umsóknarfrestur er til og með 3. mars.  Úthlutun fer fram í apríl.

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.

Umsóknarfrestur er til og með 3. mars.  Úthlutun fer fram í apríl.

Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2008 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Verkefni sem vekja athygli á sögustöðum og menningartengdum viðburðum, t.d. með tilliti til ferðaþjónustu

  • Verkefni sem efla þekkingu á sögu og sérkennum svæðisins

  • Verkefni sem stuðla að þátttöku sem flestra og brúa kynslóðabil

  • Verkefni sem fela í sér samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina sem og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað

  • Verkefni sem fela í sér nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs

 

Verkefnum sem hljóta styrk árið 2008 þarf að vera lokið í janúar 2009. Úthlutun Menningarráðs vegna ársins 2009 mun fara fram í janúar það ár.

Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu  29, 3. hæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþing vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2008. Viðtalstímar menningarfulltrúa, Ragnheiðar Jónu Ingimarsdóttur, verða sem hér segir:

Húsavík                20. febrúar kl. 9-11 á skrifstofu Norðurþings


Kópaskeri            20. febrúar kl. 15.30-16.30 á þjónustuskrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn         21. febrúar kl. 14.30-15.30 á þjónustuskrifstofu Norðurþings
Langanesbyggð             22. febrúar kl. 10-12 á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, Þórshöfn

 Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.