Fara í efni

Viðhaldslokun í sundlaug Raufarhafnar

Loka verður sundlauginni á Raufarhöfn og sturtum íþróttahússins frá 15. júlí - 30. júlí. Unnið verður að viðhaldi á miðstöðvarkatli sem hitar bæði skólann og íþróttamiðstöðina. Áætlað er að viðgerðin taki um tvær vikur en opnað verður aftur um leið og mögulegt er.
Íþróttamiðstöðinni verður haldið opinni eins og hægt er á meðan. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Kv. Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Norðurþings.