Fara í efni

Viðtalstímar bæjarfulltrúa á mánudögum

Bæjarfulltrúarnir Óli Halldórsson og Friðrik Sigurðsson auglýstu viðtalstíma á mánudögum í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík í september síðastliðnum. Almenn ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag og viðtalstímarnir vel nýttir.

Bæjarfulltrúarnir hafa þannig getað gefið sér tíma til að hlusta á tillögur og athugasemdir frá ýmsum aðilum og um leið leiðbeint í hvaða farveg mál skuli fara innan stjórnsýslunnar ef óskað er eftir formlegri afgreiðslu á erindum. 

Vonandi verða íbúar Norðurþings áfram duglegir að panta viðtal hjá þeim félögum til að ræða hin ýmsu mál, stór sem smá. 

Tímapantanir eru hjá Bergþóru Höskuldsdóttur í síma 464-6100 eða á beggah@nordurthing.is